UT-braut
From Dreifnám Wiki
Upplýsinga- og tæknibraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti er kjörin námsleið fyrir alla þá sem áhuga hafa á fjölbreyttum möguleikum upplýsingatækninnar. Nemendur kynnast margháttaðri tölvuvinnslu, s.s. vefsíðugerð, gagnagrunnsvinnslu, myndvinnslu, margmiðlun, tölvustuddri hönnun og uppsetningu og rekstri netkerfa. Brautinni er ætlað að veita nemendum fræðilega og verklega innsýn í tæknifræði, verkfræði og tölvunarfræðigreinar. Brautinni er þannig ætlað að mæta námsþörfum nemenda sem hafa sérstakan áhuga á tækni- og verkfræðilegum úrlausnum verkefna en hyggja ekki á iðnnám í tæknigrein. Nám á upplýsinga- og tæknibraut er skipulagt sem 8 anna nám og því lýkur með stúdentsprófi .
Efnisyfirlit |
[breyta] Séráfangar á UT-braut
[breyta] Hugbúnaðarfræði
Nemendur læra grunnþætti forritunar í PHP, Java og/eða C# og verklag við hönnun og prófun hugbúnaðar.
[breyta] Rauntækni
Nemendur kynnast ýmsum mæliaðferðum og vali á tækjum, fjallað er um framleiðslutækni, framleiðsluferli og lausn vandamála á því sviði. Í rauntækni ljúka nemendur CISCO-kerfi nu í tölvuumsjón.
[breyta] Tölvustudd hönnun
Í áföngunum er unnið með grafík í tvívídd og grunnatriði í þrívídd. Nemendur læra notkun algengs teikni- og hönnunarforrits og vinna hönnunarverkefni í tölvu.
[breyta] Upplýsinga- og samskiptafræði
Í upplýsinga- og samskiptafræði eru grunnhugtök samskiptafræðinnar kynnt. Farið er í stærðir og athygli nemenda vakin á mikilvægi þessara þátta með tilliti til gagna á vefnum. Nemendur læra undirstöðuatriði vefsíðugerðar og vinna vefi í sérhæfðum hugbúnaði til vefsíðugerðar. Nemendur þjálfast í notkun hljóð- og myndvinnsluhugbúnaðar og læra helstu hugtök stafrænnar hljóð- og myndvinnslu.
[breyta] Vefmiðlun
Í áfanganum er kennd hönnun vefsíðu samkvæmt XHTML staðlinum. Nemendur fá þjálfun í notkun ýmissa hjálparforrita við vefsíðugerð, s.s. Dreamweaver. Nemendur kynnast undirstöðuatriðum í stafrænni myndvinnslu og lögð er áhersla á að þeir læri að meðhöndla myndir fyrir vef. Nemendur fá þjálfun í notkun Javascript og smíða gagnvirka vefi.
[breyta] Verklagsfræði
Nemendur kynnast áætlanagerð og setja upp áætlanir í Excel. Kynning á Access gagnagrunni. Áhersla er lögð á að nemendur víkki út sjóndeildarhring sinn og temji sér að hugsa út frá öðrum og nýjum sjónarhornum.
