Skjámyndir
From Dreifnám Wiki
Kennarar og nemendur þurfa oft á því að halda að taka myndir af öllum skjánum eða afmörkuðum hluta hans. Til þessa er annað hvort notuð einföld aðferð í stýrikerfinu (stutt á ákv. lykil eða lyklasamsetningu) eða sérhæfður hugbúnaður.
Efnisyfirlit |
[breyta] Taktu skjámyndir á einfaldan máta
Einfaldasta leiðin til þess að taka skjámynd í Windows stýrikerfinu er að styðja á Print Screen lykilinn á lyklaborðinu (stundum PrtScr). Þegar það er gert tekur Windows stýrikerfið mynd af öllu því sem á skjánum er og geymir hana í minni tölvunnar. Myndina má síðan líma (paste) yfir í annan hugbúnað til birtingar eða frekari úrvinnslu. Hægt er að afmarka skjámyndatökuna við virkan glugga með því að halda alt-lyklinum niðri á meðan stutt er á Print Screen lykilinn.
Sambærileg aðgerð í Mac er Slaufa+Shift+3 og Shift+Slaufa+4 til að mynda valið svæði.
[breyta] Hugbúnaður
Til er fjöldinn allur af hugbúnaði sem hefur þá virkni eina að taka og vinna með skjámyndir. Hér verður einungis fjallað um þann helsta.
[breyta] SnagIt
SnagIt er vafalítið einn þekktasti og öflugasti hugbúnaðurinn til að taka og vinna skjámyndir í Windows stýrikerfinu. SnagIt er gefið út af Techsmith og kostar hvert notandaleyfi í kringum $40.SnagIt býður upp á margvíslegar leiðir til að taka skjámyndir, s.s. af einstökum hluta skjásins, einstaka gluggum eða tækjastikum og vefsíðum svo fátt eitt sé nefnt. SnagIt inniheldur þar að auki ritil sem einfaldar alla vinnslu skjámynda, s.s. að bæta við texta eða grafík.
SnagIt er jafnvígur á efni sem ætlað er til prentvinnslu eða útgáfu á vef. Fjölmargir möguleikar bjóðast á vistun skráa og m.a. hægt að búa til einfalt gagnvirkt efni. SnagIt getur tekið upp stutt myndskeið. Hægt er að sækja 30 daga prufuútgáfu af SnagIt á vef Techsmith.
[breyta] Jing
Jing er áhugaverður hugbúnaður frá Techsmith, framleiðendum SnagIt. Jing auðveldar gerð, hýsingu og miðlun á einföldum skjámyndum með skýringum í anda Snagit eða myndskeiðum ekki ósvipað og unnin eru í Camtasia. Jing býður ekki upp á alla eiginleika fyrrgreindra forrita en fyrir kennara sem þurfa á handhægu verkfæri að halda til að vinna leiðbeiningar eða útskýringar á fljótlegan hátt og koma til nemenda með sem minnstri fyrirhöfn þá er Jing nákvæmlega málið.Jing hugbúnaðurinn er ókeypis (óvíst hvort hann verði það í framtíðinni) en skjámyndirnar og myndskeiðin eru hýst á Screencast.com] vefnum (í eigum Techsmith) en áskrift að honum er gjaldskyld. Hægt er að sækja um 60 daga prufuáskrift til að reyna þjónustuna.
Jing er frábært verkfæri fyrir kennara í upplýsingatækni og kannski sérstaklega þá sem kenna í fjar- og dreifnámi. Jing getur örugglega komið sér vel fyrir kerfisstjóra og aðra sem aðstoða tölvunotendur þar sem það einfaldar hinum almenna notanda að senda skjámyndir til skýringa á vandamálum eða villum og kerfisstjórum að senda myndrænar skýringar til baka.
[breyta] Gadwin PrintScreen
Gadwin PrintScreen er svipaður hugbúnaður og SnagIt, en inniheldur ekki eins margþætta möguleika.Forritið er til í tveimur útgáfum, þ.e. ókeypis ókeypis og Pro útgáfu. Pro útgáfan kostar um 25 dollara hvert notandaleyfi. Einungis til fyrir Windows stýrikerfi.
[breyta] GrabUp
Hugbúnaður fyrir OS X (mac) stýrikerfi. Til í tveimur útgáfum, ókeypis útgáfu og Pro útgáfu (kostar um $20).[breyta] Skitch
Hugbúnaður og vefbundin þjónusta á ( http://skitch.com/) fyrir OS X (mac) stýrikerfi. Hægt að sækja opna betaútgáfu hér. http://plasq.com/skitch[breyta] Voila
Forrit til að taka skjámyndir og setja texta og grafík á þær fyrir OS X (mac) stýrikerfi. Hægt að sækja 30 daga prufuútgáfu hér. http://www.globaldelight.com/voila
[breyta] Bug Shooting
Bug Shooting is a free screenshot utility that was developed for software testers who use bug tracking systems including FogBugz, Gemini, Ontime and BugTracker.NET. Screenshots can also be sent to Skype or a default E-Mail application (e.g., Outlook). Ókeypis hugbúnaður fyrir Windows. Þarfnast .NET 2.0. http://www.bugshooting.com
[breyta] Screenshot Captor
http://www.donationcoder.com/Software/Mouser/screenshotcaptor/index.html
[breyta] Screen Block grabber
http://www.nirmaltv.com/2008/12/24/capture-screenshots-with-screen-block-grabber/






