Quizlet
From Dreifnám Wiki
Quizlet er netbundin þjónusta sem gerir öllum sem áhuga hafa kleift að setja saman orðalista og leggja fjölbreyttar æfingar fyrir nemendur. Quizlet er dæmigerður web 2.0 vefur þar sem notendur geta deilt með sér orðalistum og æfingum sem þeir hafa skapað. Notendur geta einnig haft samskipti sín á milli í gegnum vefinn. Quizlet er einfalt í notkun og opið öllum en innskráning veitir notendum aukna möguleika.Öll notkun Quizlet er endurgjaldslaus.
[breyta] Notkun
Quizlet hentar vel í tungumálanámi og er hægt að vinna verkefni á íslensku í því jafnt sem öðrum tungumálum. Eins og gefur að skilja eru flest verkefnin sem finnast á Quizlet á ensku.
Quizlet skiptist í þrjá hluta:
- Yfirlit
Notendur fara yfir orðalista og reyna að leggja orðin eða hugtökin á minnið. - Læra
Notendur fara ítarlega yfir hvert einstakt orð í orðalistanum og skilgreininguna á því. - Könnun
Notendur eru prófaðir úr viðkomandi orðalista með fjórum ólíkum spurningategundum, þ.e. stuttum skrifuðu svörum, pörunarspurningum, fjölvalsspurningum og rangt/rétt spurningum.
Kennarar geta búið til eigin verkefni á Quizlet eða nýtt verkefni eftir aðra. Kennarar geta vísað nemendum á vefinn eða varpað verkefnum þaðan inn í netbundið námsumhverfi, s.s. Moodle.
[breyta] Sýnishorn
Flokkar: Tungumál | Enska | Kennsluforrit | Sérkennsla


