Picasa

From Dreifnám Wiki

Efnisyfirlit

[breyta] Picasa

Picasa er ókeypis hugbúnaður frá [Google] sem gerir notendum kleift að halda utan um myndasafn sitt í tölvunni á einfaldan og mjög handhægan máta. Hversu stórt og óviðráðanlegt sem það kann að vera.

Picasa inniheldur einnig allar helstu aðgerðir til að breyta og/eða lagfæra myndir. Einfalt er að flokka myndir í sérstök albúm, merkja þær og skrá inn lýsingar á myndefninu. Síðast en ekki síst býr Picasa yfir öflugum verkfærum til að færa myndir yfir á geisladiska, senda í tölvupósti eða prenta þær á pappír.


[breyta] Picasa sótt á Netið og sett upp á tölvu

Picasa hugbúnaðurinn er aðgengilegur á vefslóðinni http://www.picasa.com og þangað geta allir sem áhuga hafa sótt sér hann án endurgjalds. Picasa hefur verið þýtt yfir á fjölmörg tungumál, þar á meðal íslensku.

Það er einfalt að sækja Picasa á Netið og setja upp á eigin tölvu. Picasa er fyrst og fremst hannað fyrir Windows stýrikerfið en til er sérstök útgáfa fyrir Linux. því miður er Picasa ekki til fyrir Macintosh tölvur.


[breyta] Myndir fluttar inn, skoðaðar, flokkaðar í albúm og merktar með lykilorðum

Um leið og Picasa forritið er ræst leitar það eftir öllum stafrænum myndum sem finnast á hörðum disk eða diskum tölvunnar. Picasa þekkir eftirfarandi skráarsnið:

  • Ljósmyndir
    JPG, GIF, TIF, PSD, PNG, BMP, RAW. Athugið að Picasa þekkir GIF og PNG skrár en þær eru ekki teknar með í þessari yfirferð nema sérstaklega sé óskað eftir því.
  • Kvikmyndir
    MPG, AVI, ASF, WMV, MOV.

Þegar Picasa hefur lokið yfirferð sinni er hægt að skoða myndirnar í meginviðmóti forritsins, í svonefndum safnham (Library view). Þaðan er einnig aðgengi að frekari aðgerðum forritsins.

Picasa gefur notendum mjög gott yfirlit yfir allar myndirnar í tölvunni og það er einfalt að leita eftir myndum. Notendur geta fært myndir úr einni möppu í aðra, eytt þeim eða endurnefnt. Engar breytingar eru framkvæmdar fyrr en notandinn hefur staðfest þær.

Picasa birtir allar möppur í tölvunni sem innihalda myndir í tímaröð. Notendur geta einnig flokkað myndirnar í svokölluð albúm, en albúm eru einungis til staðar innan Picasa. Einstaka mynd getur einungis verið í einni möppu í tölvunni (nema hún sé afrituð) en hægt er að flokka sömu myndina í mörg albúm í Picasa.

Myndir er hægt að merkja með einu eða fleiri lykilorðum. Hægt er að nota lykilorð til þess að leita eftir myndum.

Myndir má stjörnumerkja í Picasa og er það góð leið til þess að merkja áhugaverðar myndir eða myndir í sérstöku uppáhaldi. Einfald er að leita sérstaklega eftir stjörnumerktum myndum.

[breyta] Einföld myndvinnsla og litaleiðréttingar

Picasa inniheldur fjölmarga skemmtilega möguleika til einfaldrar myndvinnslu og leiðréttingar á ljósmyndum. Hér er yfirlit yfir þá:

[breyta] Basic Fixes

  • Crop
  • Straighten
  • Redeye
  • I'm Feeling Lucky
  • Auto Contrast
  • Auto Color
  • Fill Light

[breyta] Tuning (fínstillingar)

  • Fill Light
  • Highlights
  • Shadows
  • Color Temperature
  • Neutral Color Picker

[breyta] Effects

  • Sharpen
  • Sepia
  • B&W
  • Warmify
  • Film Grain
  • Tint
  • Saturation
  • Soft Focus
  • Glow
  • Filtered B&W
  • Focal B&W
  • Graduated Tint

[breyta] Deildu myndunum þínum með vinum og kunningum eða bara öllum heiminum

Picasa einfaldar mjög lífið fyrir þá notendur sem vilja deila myndum sínum með fjölskyldumeðlimum, vinum og kunningum eða jafnvel hverjum sem er á Netinu. Eftirfarandi möguleikar eru í boði:

  • Prenta myndir
  • Skrifa myndir á geisladisk
  • Senda myndir í tölvupósti
  • Nota mynd sem grunn að bloggfærslu
  • Búa til myndaalbúm á Netinu

[breyta] Myndbrellur í Picasa

[breyta] Viðbætur

  • Picasa2Flickr
    Viðbót sem gerir notendum kleift að senda myndir úr Picasa beint yfir í Flickr.
Views
Tenglar