From Dreifnám Wiki
Efnisyfirlit |
[breyta] Hvað er PDF?
Skammstöfunin PDF stendur fyrir Portable Document Format sem er opið skráarsnið hannað og þróað af Adobe fyrirtækinu. PDF er ISO staðall.
PDF lesara má sækja á Netið og nýta án endurgjalds, en Acrobat hugbúnaðinn frá Adobe sem notaður er til að búa til PDF skjöl verður hins vegar að kaupa. Auk Acrobat er hægt að nota margvíslegan annan hugbúnað til þess að færa skjöl yfir á PDF snið, bæði séreignahugbúnað og opinn hugbúnað.
Kostir PDF umfram önnur skjalasnið eru nokkrir. Skjöl sem vistuð eru á PDF sniði henta mjög vel til dreifingar á vef þar sem þau taka yfirleitt minna pláss en skjöl á öðrum skráarsniðum, s.s. Powerpoint. Einnig tryggir PDF sniðið að notendur hafa aðgang að skjalinu eins og það kemur frá höfundi, allar leturgerðir eru innbundnar og uppsetning helst stöðug og er óháð hug- eða vélbúnaði notanda. Þannig er einfalt að dreifa hverskyns skjölum á PDF sniði án þess að þurfa að hafa áhyggjur af því að lesandinn eigi þann hugbúnað sem skjalið var upphaflega sett saman í.
[breyta] Hugbúnaður til að lesa eða búa til PDF skjöl
Hægt er að mynda PDF skjöl beint úr Office 2007 hugbúnaðinum með því að sækja og setja upp ókeypis viðbót frá Microsoft. Eins býður ýmiss hugbúnaður frá Adobe, s.s. Indesign umbrotsforritið og Illustrator teikniforritið upp á vistun á pdf sniði. Búi hugbúnaður ekki yfir þessum möguleika verður að nýta sérhæfð forrit til þess að mynda PDF skjöl.
[breyta] Séreignahugbúnaður
- Adobe Reader
Ókeypis hugbúnaður til að lesa PDF skjöl. Adobe Reader er yfirleitt til staðar í tölvum. Hann gæti þó þarfnast uppfærslu. - Adobe Acrobat
Hugbúnaður frá Adobe til þess að búa til og sýsla með PDF skjöl. - CutePDF
Ókeypis hugbúnaður. Styður Microsoft Windows 98/ME/2000/XP (x64)/2003 (x64)/Vista (x64). Krefst uppsetningar á PS2PDF breyti, mælt er með Ghostscript. Forritið er einnig til í Pro útgáfu sem kostar um 40$.
[breyta] Opinn hugbúnaður
- PDF Creator
Hentar vel til þess að búa til PDF skjöl úr nánast hvaða skjali sem er. PDF Creator Inniheldur ekki alla möguleika Acrobat en er engu að síður mjög öflugt og handhægt í skólastarfi. PDF Creator er hægt að setja upp á tölvuneti. - PrimoPDF
Setur upp sýndarprentara sem gerir notendum kleift að "prenta" út pdf skjöl.
[breyta] Hugbúnaður til að samþætta eða sameina eða sundra PDF skjölum
- Combine PDFs (fyrir Machintosh)
- PDFSam
Skrifað í Java og hægt að keyra á Windows/Mac/Linux.
[breyta] Annar hugbúnaður sem tengist pdf skjölum
- Some PDF to Word converter
Ókeypis hugbúnaður sem breytir skjölum á pdf sniði yfir á Microsoft Word snið. - Some PDF Image Extract
Ókeypis hugbúnaður sem sækir og vistar myndir úr pdf skjölum.
[breyta] Hvernig eru PDF skjöl búin til?
PDF skráarsniðið er fyrst og fremst ætlað til miðlunar á efni sem unnið er í öðrum hugbúnaði, s.s. ritvinnslu, umbrotsforriti eða töflureikni (í raun hvaða forriti sem er). Það er því ekki til eiginlegur PDF ritill eða sérhæfður hugbúnaður til þess að vinna PDF skjöl frá grunni.
[breyta] PDF skjöl búin til í Acrobat
Þegar Acrobat hugbúnaðurinn hefur verið settur upp á tölvu notanda er einfalt að búa til PDF skjöl úr hvaða forriti sem er. Einfaldast er að gefa prentskipun og velja pdf sem prentara. Acrobat setur einnig upp litla tækjastiku í Office hugbúnaðinum þannig að einungis þarf að smella á einn hnapp í þessum hugbúnaði til að vista skjal á PDF sniði.
