PDF í Office 2007

From Dreifnám Wiki

Hægt er að mynda PDF skjöl beint úr Office 2007 með því að sækja án endurgjalds sérstaka viðbót frá Microsoft. Viðbótin er sótt með því að smella á Office táknið efst í vinstra horni Office hugbúnaðar og velja svo Save As af valseðlinum sem birtist. Undir Save As er valið Find add-ins for other file formats.

Skrunaðu niður í glugganum sem opnast þangað til þú finnur fyrirsögnin "Install and use the Save as PDF or XPS add-in from Microsoft". Þar smellir þú á krækjuna "Microsoft Save as PDF or XPS Add-in for 2007 Microsoft Office Programs" Þegar smellt er á þá krækju opnast vefskoðarinn á viðkomandi síðu og áður en hægt er að sækja viðbótina verður að staðfesta að um löglega útgáfu af Microsoft hugbúnaði sé að ræða. Það er gert með því að smella á Continue hnappinn (sjá mynd).

mynd:microsoft_validation.jpg

Eftir að staðfestingarforritið frá Microsoft hefur verið sótt og virkjað með því að ræsa það er komið að því að sækja sjálfa PDF viðbótina við Office pakkann. Það er gert með því að smella á Download hnappinn á vefsíðunni sem nú hefur opnast.

mynd:Office2007_pdf2.jpg

Ræstu skránna SaveAsPDFandXPS.exe sem inniheldur PDF viðbótina og nýr valkostur mun bætast við forritin í Office hugbúnaðarsafninu.

Næst þegar þú smellir á Office táknið og velur Save As getur þú valið um að vista skjalið á PDF sniði.

mynd:Office2007_pdf3.jpg

Views
Tenglar