Hugarkort
From Dreifnám Wiki
Hugarkort er kort eða skýringarmynd sem sýnir tengsl orða, hugtaka, hugmynda eða verkefna miðað við einhverja miðju sem oft er orð eða hugmynd. Hugarkort eru aðferð í námstækni og hugmyndavinnu, aðferð til að flokka og raða hugmyndum og hugtökum og til að setja hugmyndir fram á myndrænan hátt í takt við það hvernig hugurinn virkar. Hugarkort nýtast sem námstækni þannig að nemandi gerir eigin hugarkort til að skilja og muna flókin hugtök.Hugarkort geta nýst í allri hugmyndavinnu svo sem til að greina vandamál og leita að lausnum og sem hjálpartæki við ákvarðatöku. Hugarkort má teikna á blað eða töflu eða vinna stafrænt í þar til gerðum hugbúnaði.[1]
Efnisyfirlit |
[breyta] Séreignahugbúnaður
- MindManager
MindManager er leiðandi hugbúnaður á vettvangi stafrænna hugarkorta og er vel þekktur hér á landi. - Inspiration
Til í tveimur útgáfum, önnur fyrir börn (Kidspiration) en hin fyrir fullorðna. - NovaMind
- Cayra
Dálítið sérstök og litrík lausn. Notendaviðmótið er einfalt en notkun frekar óþægileg þar sem Cayra notast ekki við sömu flýtiskipanir og algengast er með hugarkort. Cayra krefst .Net 3.0. Cayra er ókeypis þegar þetta er skrifað en ekki er vitað hvort svo verði alltaf. - MYmap
- iMindMap
Hannaður af sjálfum Tony Buzan sem af mörgum er talinn upphafsmaður nútíma hugarkorta. - Webspiration
Veflægur hugbúnaður frá framleiðendum Inspiration og Kidspiration.
[breyta] Opinn hugbúnaður
- FreeMind
Freemind er opinn hugbúnaður sem hefur svipaða virkni og séreignahugbúnaður. Freemind er skrifað í Java og keyrir m.a. á Windows, Mac OS X og Linux stýrikerfunum. Freemind er ókeypis og því spennandi valkostur fyrir skóla sem vilja innleiða notkun hugarkorta í námi og kennslu. - XMind
Opinn hugbúnaður sem er skrifaður í Java.
[breyta] Netbundinn hugbúnaður
Netbundinn hugbúnaður verður sífellt öflugri og vinsælli valkostur notenda. Netbundin hugarkort innihalda enn sem komið er ekki nema brot af þeim kostum sem Mindmanager, Inspiration, Freemind eða sambærilegur hugbúnaður býr yfir. Þetta er algengt þegar netbundinn hugbúnaður á í hlut en þá er gott að hafa hafa í huga að Mindmanager á það sameiginlegt með Microsoft Office og mörgum öðrum vinsælum og langlífum hugbúnaði að einungis brot af kostum hans eru nýttir af hinum almenna notanda. Hugarkort eru einföld hugmynd og það þarf alls ekki viðamikinn hugbúnað til að vinna með þau.
Hugarkort eru eins og sniðin að Netinu enda býður netbundinn hugbúnaður upp á ýmsa kosti sem hefðbundinn hugbúnaður gerir ekki. Notendur geta t.a.m. unnið í hugbúnaðinum hvar og hvenær sem er, svo lengi sem nettenging er til staðar. Kortin má einnig geyma miðlægt á Netinu og fleiri en einn aðili getur unnið í sama hugarkortinu á sama tíma, óháð staðsetningu. Sumar netbundnar lausnir, eins og t.d. Mindmaster og Mind 42, bjóða einnig upp á þann kost að varpa kortinu á hvaða vef sem er.
Netbundin Hugarkort

